Í dag er MÁNUÐUR síðan ég flutti til Würzburgar 🙂 Hver setti tímann á „fast forward“?! Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða!
Ég hef ekki mikinn tíma til þess að blogga núna vegna þess að ég þarf að halda áfram að hlaupa í hús til þess eins að vera send í næsta hús! Útskýrist síðar 😉 Fannst ég bara tilneydd til þess að blogga í tilefni dagsins!
Knús 🙂
-Kristrún
Verð eiginleg að segja að mér finnst heil langt síðan þú fluttir út!
En það er alltaf sagt að ef tíminn er fljótur að líða þá sé gaman:D
Hlakka til að heyra útskýringuna á þessum húsahlaupum!
vó!
en það þýðir þá líka bara að það fer að verða rosastutt þangað til að þú kemur heim 😉
Elsku kellan mín, sakna og elska.
Segðu hvað er meira að ske, sit hér með andan og alla aðra í hálinum. Gangi bara allt vel.
Sorry!! Ég held að bloggið verði að bíða þangað til á mánudag. Nema ég verði svo heppin að fá nettengingu heim í kvöld – sem er ÓLÍKLEGT!
Því ég þarf að gera alltof margt áður en ég fer til Heidelberg 🙂
Já tíminn líður greinilega allt og hratt hjá þér – þú virðist ekki einu sinni gera þér grein fyrir að það er kominn þriðjudagur og bráðum miðvikudagur og það þýðir að mánudagur er búinn! Hvar eru útskýringarnar? :p
Hvaða mánudagur var þetta sem um var talað?