Hér koma örfréttir af kaffihúsi:
Íbúðin hefur tekið vel á móti mér, heimatilfinning eykst á hverjum degi 🙂 En mun þó aukast til muna þegar ég fæ loksins netið í íbúðina!
Strætóferðir til og frá miðbænum um helgina hafa þó verið af verri endanum! Á virkum dögum ganga strætóarnir þokkalega ört en um helgar ekki nema á 1-2 klst fresti! Þó er um að ræða val um 3 vagna þannig að það sleppur. Um helgina voru hins vegar vegavinnuframkvæmdir við stoppistöðina mína og sökum þess var sú gata ekki notuð. Ég þurfti því að ganga langa vegalengd að næstu nothæfu stoppistöð og voru þessar gönguferðir, klifjuð pokum og töskum ekki mjög vinsælar 😉 Til þess að gera langa sögu stutta þá voru þær margar ruglingslegar strætóferðirnar um helgina !
Svo gerðist það víst um helgina að klukkan breyttist yfir á vetrartíma !! Sá dagur var mjög skrautlegur þar sem að ég hafði ekki hugmynd um að tíminn hefði breyst. Ég beið eftir strætó-um út um allan bæ klukkutíma of fljótt (án þess að vita af því auðvitað) og fannst búðirnar opna á heldur skrítnum tímum. Þegar heim var komið eftir góðan en undarlegan dag, eldaði ég mér kvöldmat og settist fyrir framan sjónvarpið (haldandi það að klukkan væri 20) og komst þá að því að það voru fréttir á öllum stöðvum (sem eru vanalega kl 19). Nú varð ég alveg rugluð, kíkti á textavarpið og þar stóð að klukkan væri 19:05 ! Til gamans má geta þá missti ég símann minn í götuna fyrr um daginn og hugsaði því á þessari stundu: „klukkan hlýtur að hafa ruglast þegar batteríið datt úr símanum“. Þegar ég fór svo að hugsa aðeins lengra til baka þá fór þetta allt að vera skírara, hvers vegna enginn strætó lét sjá sig á réttum tíma og hvers vegna búðirnar hafi opnað klukkutíma of seint. Grunur minn var svo staðfestur þegar ég fékk kærkomið sms frá föður mínum þar sem stóð: „Þú veist að klukkan hjá þér er 8 en ekki 9 af því það er kominn vetrartími hjá þér.“ – Takk pabbi! 😀
Fyrir utan þennan misskilning þá var helgin mjög góð! 🙂 Í gær var kaþólskur frídagur í Þýskalandi þannig að það var 3 daga helgi. Í skólunum er reyndar frí alla vikuna vegna haustfrís! En í tilefni frídagsins var markaður í miðbænum og allt iðandi af lífi! Þetta var eins og annasamur sumardagur í New York. Veðrið var æði, miðbærinn stútfullur af fólki, tívolítækjum, sölubásum, og skemmtiatriðum! Yndislegt 🙂 Á laugardaginn kíkti ég svo aðeins út á lífið með stelpu sem var með mér í herbergi á hostelinu. Það var góð tilbreyting!
En ja hérna – þetta voru langar örfréttir! Þvottafjallið ógurlega er farið að öskra á mig upp úr töskunni – það er víst kominn tími á að koma sér í þvottahúsið.
Knús á ykkur í bili 🙂
-Kristrún
Það er mjög mikilvægt að fylgjast með tímanum þegar þarf að reiða sig á almenningssamgöngur. Vonandi verða þvottavélarnar þægar við þig.
gott að heyra að heimatilfinningin sé að aukast:) Matur í ískápnum og föt annars staðar en í tösku rétt? =Þ
knús í „nýtt“ hús
Hæ, ég heiti Arnbjörg, og ég er dyggur lesandi þessa bloggs.
Var þetta eins og í New York? Voru þá agaleg hottý sprangandi um á brókinni eins og í New York?? Ef svo er…. ÞÁ ER ÉG Á LEIÐINNI!!
það var flott, verið alltaf velkomnar
Fanney þú hittir naglann á höfuðið! 😉
Takk Abba – mér þykir vænt um að vita af því 🙂
Og Anna Guðrún! Sko… þeir voru ekki berir í búðargluggum en það er bara af því að þess þarf ekki hér, því þeir labba allt í kringum mann daglega (í fötum samt) ;o) Þannig að… ég hlakka til að sjá þig 😀
Kristrún mín, þessir á 5th Avenue voru ekki slor, enda tók ég myndir af ykkur Guðrúnu með þeim, og eru þeir allta að spurja um ykkur !!!
Er ekki kominn tími til að segja frá næsta þvottadegi eða hvað?