Posted by: kristrun | febrúar 1, 2008

Fyrsta bloggið!

Jæja…þá er ég búin að finna mér nýja bloggsíðu! Ég er eitthvað að reyna að vinna í henni en eins og flestir vita þá er ég ekki beint sú klárasta á tölvur :S En þetta kemur eins og annað! Þarf bara að fá Önnu Guðrúnu eða Fanney í heimsókn ;)  Annars er voðalega lítið að frétta af mér held ég! Ég er búin að vera veik síðustu tvo daga…er um það bil að mygla úr leiðindum! Verð að vera orðin hress á morgun því ég á að fara í söngtíma, óperudeildaræfingu og árshátíð í skólanum :D Úff hvað ég verð svekkt ef ég missi af þessu öllu!! Nei nei…ég verð orðin hress! og hana nú! Ég ætla að fara að reyna að læra nokkra texta utan að!Blogga meira þegar ég hef eitthvað að segja….jahh…eða þegar ég man hvernig á að blogga!Segið þið mér nú eitthvað skemmtilegt í kommentum ;) Kristrún  

« Newer Posts

Flokkar