Ég lofaði víst fyrir all nokkru síðan að henda hérna inn myndum við tækifæri. Í millitíðinni hefur aðeins of mikið verið í gangi til þess að ég finni tíma til þess
Þar má helst nefna flutninga niðrí miðbæ, bíóferð, hálfþveginn þvott, ægilega lærdómstörn fyrir B1 þýskupróf, gönguferðir upp að kastala og hoppandi káta grenjandi söngtíma!
En hér kemur eitt stykki myndablogg!
Ég var búin að lofa myndum af flóðinu í ánni Main og til þess að auðvelda mér málið þá er hér linkur inn á frábærar myndir af flóðunum: http://www.flickr.com/photos/mattrkeyworth/5349279263/in/photostream/
Þá eru það myndir af íbúðinni:
Þessar myndir voru teknar í flýti fyrir æsta aðdáendur. Síðan þá hafa verið gerðar nokkrar breytingar og Helga flutt yfir í annað herbergi.
Þetta er stofan/herbergið mitt.
Bæði rúmin voru í stofunni.
Hér er gengið fram á ganginn.
Eldhúsið. Hér er mikið eldað !!
Hitt herbergið.
Gangurinn, tekið frá baðherbergi.
Þetta er flennistór íbúð og ekki laust við að maður fái víðáttubrjálæði eftir kósí litlu kjallarholuna í Höchberg
Þetta er útsýnið út um stofugluggann. Fyrir þá sem þekkja til þá grillir í Die alte Mainbrücke þarna bakvið trén
Ooooog meira mont!
Okkur Helgu tókst að setja í þvottavél og fá fötin nánast þurr út aftur!
Og að lokum fær fyrsta “vor”myndin að fylgja með. Tekin í vorveðrinu sem við fengum í síðustu viku, 15 stiga hita og sól
Næstu dagar eru svo orðnir pakkaðir af skemmtilegheitum! Helga fær þýsku nöfnu sína í heimsókn, innflutningsdjamm með þjóðverjunum og brennivíni, Abba kemur í heimsókn á mánudaginn og svo er bara svo gaman að syyyyyyngja!
Ég kveð í bili!
-Kristrún











Frábær íbúð! Og útsýnið hefur mikið að segja. En hwað war málið með þwottinn ???
Vá, hvað ég hlakka til að koma! Ég varð nefnilega veik síðastliðinn sunndag, beinverkir, mikill hiti og kvef, og er svona að jafna mig. Komst þar af leiðandi ekki til Póllands í gær þannig að ég ber miklar væntingar til Þýskalandsferðarinnar!
Knús á ykkur skvísur. Gaman að sjá það þið hafið það njótið ykkar.
Flott nýja íbuðin og útsýnið:) get ekki beðið eftir að vorið komi til íslands líka!
Gaman að sjá myndir:)Hlakka til næsta bloggs sem verður líklegast um skemmtilega heimsókn eða heimsóknir:) Knús í hús á ykkur:D
Heyrðu sko það er bannað að skipta um bakgrunn og headermynd og blogga ekkert!