(Ath. Þetta blogg er samið á sunnudagskvöldi en póstað á mánudegi!).
Það hlaut að koma að því. Í síðustu viku fannst mér alltof langt þangað til ég færi heim! Nú sit ég heima og pirra mig yfir því að allt sé lokað á sunnudögum því ég á eftir að gera svo agalega margt áður en ég fer heim og það eru bara 12 dagar þangað til !!
Þessi vika var stútfull af þýskutímum, söngtímum, leiðinda erindum, strætóferðum, jólaglöggi, jólamarkaði og verslunarferðum! Það er seint hægt að segja að mér leiðist hérna í Würzburg. Stranga Þýskaland sér svo sannarlega um að halda mér við efnið og þess á milli reyni ég að syngja og næla mér í smá félagsskap
Ég jólaskreytti pínulítið hjá mér í dag og nú sit ég undir teppi við kertaljós og hlusta á jólalög. Í tilefni þess tel ég við hæfi að enda þessa bloggfærslu á nokkrum jólamyndum.
Jólamarkaðurinn mættur á svæðið.
Jólasyrpa.
Aðeins búið að skreyta borgina
Jólalestin: Ég er ekki búin að prufa það sjálf. En mér sýnist þetta vera pínulítið kaffihús þar sem sjálfur Jólasveinninn þjónar þér til borðs!
Fyrsti snjórinn
Ristastóra jólatréð sem óx upp úr gangstéttinni á einni nóttu.
Og enn bætist á jólaskrautið og snjóinn. Helga mín, ég lofa að reyna að taka betri myndir af snjónum í vikunni
Gleðilega Aðventu!
-Kristrún.










Greinilega orðið jólalegt hjá ykkur í Wurzburg. Við hlökkum til að fá þig heim um jólin.
ó Kristrún kemur heim um jólin:D Vúb vúb:)
Gaman að sjá myndir:) Hlakka til að heyra í þér á skype næstu daga:D
Jólin, jólin, jólin koma senn og það eykur á jólastemminguna þegar litla Kristrún telur niður dagana!
ég þakka
ætli Kristrún hafi verið í svo djúpum þönkum að hún hafi labbað á jólatréð og rotast??
ertu svo ekki til í að taka með þér smá snjó?
Hlakka til að sjá þig kannski eftir tæpa viku!