Ég klikkaði víst á því að segja frá aðdraganda strætóferðarinnar ógurlegu. Þessi dagur hafði nefnilega ekki farið af stað alveg eðlilega, eða allavegana ekki eins og vanalega. Sjáið til, þegar vanalegu morgunrútínunni minni var lokið og ég tilbúin til þess að leggja af stað í skólann, opnaði ég útidyrahurðina og á móti mér tók………………………………..BRODDGÖLTUR !! Sem hafði ákveðið að dyramottan mín væri góður staður til þess að búa á. Hann skipti þó fljótt um skoðun þegar ég opnaði hurðina og hljóp beinustu leið út í heim. Viðeigandi öskur mín gætu hafa haft þar áhrif. Ég vona að það hafi ekki líka liðið yfir hann seinna um daginn.
Kannski var strætóferðin ógurlega bara afleiðing kynna minna við broddgöltinn ógurlega….
Í þetta sinn var það allavegana ekki sætur strákur, en takk fyrir hugmyndina. Hún er ekki svo slæm!
Á fimmtudaginn kíkti ég aðeins á mannlífið í miðbænum með þýsku stelpunni sem ég kynntist á hostelinu, stelpunni sem leigir með henni núna og nokkrum vinum hennar. Með öðrum orðum: ég og 5 þjóðverjar á frekar háværum bar…. og ég skildi ekki orð !! Leiðrétting, ég skildi mest allt ef einhver einn var að tala beint við mig en þegar þau voru öll í heitum samræðum sín a milli – HÆGIÐ Á YKKUR FÓLK!! (sagði ég ekki, heldur sat eins og hálfviti og reyndi að grípa eitt og eitt orð).
En það var samt agalega gaman!
Góð tilbreyting frá því að sitja alein heima á kvöldin, horfa á þýskt sjónvarpsefni og gera þýskuverkefni. Bara það að hafa möguleika á félagsskap heldur í mér lífinu – þó svo að ég skilji ekki orð af því sem félagsskapurinn segir – en það kemur með tímanum!
Næst á dagsskrá er grillpartý á svölum um miðjan vetur. Ég hlakka til!
Jólamarkaðurinn opnaði í gærkvöldi og kveikt var formlega á jólaljósum borgarinnar. Í tilefni þess voru búðirnar niðrí bæ opnar til klukkan 22. Ég hélt mig þó heima undir teppi eftir langan og þreyttan dag.
Og nú iðar borgin af lífi, stútfull af snjó, fólki og jólaskrauti. Ég ætla að fara að rölta um jólamarkaðinn og næla mér í smá jólaskap!
Adios Amigos!
-Kristrún
p.s. Berglind, værirðu nokkuð til í að segja henni Helgu hvernig þér fannst kristallinn (bjórinn sem við smökkuðum á hótelbarnum)
mig langar að sjá mynd af jóla/snjó Würzburg
Yndisleg blogg færsla:) Alveg efni í bók sumt að því sem þú ert að blogga um:) Segjir mjög skemmtilega frá:P
Gleðilega aðventu, stillt og fallegt veður hér en enginn jólasnjór!
Kristallinn (bjórinn)var mjög góður. Með betri bjórum sem ég hef smakkað.