Ég vissi að enginn myndi nenna að lesa þessa bloggfærslu til enda!
Nú er komið að því skemmtilega. Um síðustu helgi hitti ég stóru systur og hennar eiginmann í Heidelberg. Þau voru þar í árshátíðarferð með vinnunni hennar Berglindar og svo heppilega vildi til að það tekur mig aðeins rúma 2 tíma að taka lest þangað
Við áttum saman frábæran sólarhring sem samanstóð aðallega af verslunarferðum, bjórprófun, indverskum kvöldverði og hótel-leynimakki!
Hinn fullkomni sólarhringur sem var auðvitað alltof fljótur að líða!
Síðustu vikuna hefur svo jólaskrautið smám saman tekið völdin hérna í Würzburg! Búðirnar eru orðnar yfirfullar af jólavörum, borgarstarfsmenn iðandi um alla borg að hengja upp greni og jólaseríur (sem er þó ekki búið að kveikja á ennþá) og RISASTÓR jólatré vaxa upp úr gangstéttum á einni nóttu! Á föstudaginn opnar svo Jólamarkaðurinn á torginu niðrí miðbæ. Ég hlakka mikið til þess – það er víst stórkostlegt!
Jólabarninu finnst þessi jólaundirbúningur sko ekki leiðinlegur og ekki róuðust fiðrildin í maganum þegar ég pantaði flug heim um jólin í gær! Ég kem heim 17.desember – og það eru bara 25 dagar þangað til !!
Og já svona í lokin, ykkur til skemmtunar, þá tókst mér að láta líða yfir mig í strætó í morgun……..nei ég er ekki að djóka !!!!
Ást og friður
-Kristrún



Mín kenning er sú að þú hafir séð einhvern sætan strák í strætó og viljað vekja á þér athygli. Ekki rétt???
omg… voðalega er stutt í þetta, mér finnst þú bara vera nýfarin út
En mig langar að vita hvernig Berglindi þótti Kristallinn….
Var það ekki broddgölturinn sem kom öllu af stað?
Knús. Mamma
Flottar myndir af okkur. Ég hlakka til að heyra meira um þessa strætóferð!!
vá vá vá
Stutt í að þú komir heim
Flottar myndir!