Posted by: kristrun | nóvember 3, 2008

Ég er að blogga aftur!!!!

Ég er komin í bæinn aftur….voðalega er nú gott að vera í sveitasælunni :) Stórhættulegt samt að fara of sjaldan heim í sveitina, því þegar maður loksins drífur sig þá tímir maður ekki að eyða tímanum í lærdóm og æfingu!! Alltof gott að njóta þess bara í rólegheitum að eyða tíma með fjölskyldu og vinum :) Mér tókst nú reyndar illa að klófesta mömmu mína í meira en nokkrar mínútur í senn…en það kemur bara seinna! ;)

Við Hákon Kári krúsídúlla áttum saman góðan dag á laugardaginn. Mamma hans og pabbi stungu af á Klaustur yfir nótt þannig að ég færði mig yfir til hans. Við fórum í 2 afmæli, pöntuðum okkur pizzu, spiluðum, horfðum á simpson og latabæ! Algjör dekurdagur fyrir suma…ég er sko besta frænka í heimi ;)  

Í gærkvöldi sungum við systur á Hótel Rangá fyrir eitthvað uppafyrirtæki frá Hollandi. Það var spes!! En skemmtilegt :)  

Óperudeildin byrjaði í kvöld. Mér líst bara í heildina litið mjög vel á næstu tónleika. Það verður gaman að fást við ný verkefni :)  

Annars er allt í einu brjááááálað að gera í skólanum, trilljón tónleikar og verkefni framundan. Ég þarf að fara að skipuleggja mig betur!! Sólarhringurinn mætti alveg vera aðeins lengri :D Ég er svo lengi að öllu finnst mér! En mikið svakalega er þetta gaman….það er gaman að lifa krakkar! :)  

Set eina mynd með af því að ég er svo ógeðslega klár að setja myndir með bloggunum! (Var sko að fatta hvernig á að gera það ;)

Þetta er við stöllur í Kaliforníu í heimsókn hjá besta vin okkar ;)

 



Responses

  1. Oooh en gaman hjá ykkur ! Þú ERT besta frænka í heimi (skorar líka ansi hátt á plat-frænku skalanum :) ! ). Verð að fara að kíkja á þig:)

  2. oooo takk sæta…mikið er ég ánægð að heyra það :) Vonandi sjáumst við á morgun! Hlakka til :)

  3. mmm sælla minninga…..

  4. Já ég er sammála þessu með brjálað að gera.. fékk smá svona :O ” allt í einu er að fara að koma próf” “allt í einu er ég að verða eldri” “allt í einu er árið að klárast” og bara svona fullt allt í einu tilfinningu….

    En já Kristrún klikkar ekki í frænku hlutverkinu:D Go Kristrún

  5. Já vá – það er aftur að koma nýtt ár ! Þetta er nýbyrjað !

  6. Ciao, bella la foto con Shreck!!
    Stonano un pò le calze a metà polpaccio quando una non ha le gambe lunghe lunghe e magre soprattutto. Ma vabbè.

    Bless Bless from Itay
    Ely


Leave a response

Your response:

Flokkar