…..íííííííí
Loksin Loksins!! Þjóðhátíðarlausa verslunarmannahelgin er afstaðin…og ég er ennþá á lífi!! Það stóð tæpt á tímabili en því var bjargað með því að fara aftur í vinnuna og detta í það með yfirmönnunum
(Slapp nefnilega við það að taka barvaktina öll þrjú kvöldin, og hætti því um 9). Í gærkvöldi birtist svo Berglind vinkona óvænt…af hennar hálfu líka!! Hún hafði ekki hugmynd um að ég ynni þarna (reyndar held ég að hún hafi ekkert verið alveg viss um hvar hún var heldur) Borgarstelpur…
Nú er ég búin að vera að vinna í laaaaanga 8 daga og fæ loksins frí í 2
Þeim verður eytt í barnapössun og söngæfingar! Námskeiðið sem ég er að fara að taka þátt í byrjar víst næsta mánudag og ég hef ekki sungið í allt sumar…ekki seinna vænna að fara að byrja!
Eins og þið sjáið þá geri ég lítið annað en að vinna þessa dagana og því er lítið að frétta! En ég er þó með eina frétt….soldið merkileg….eiginlega bara tilkynning? Ég var að greinast með mikið katta-og hundaofnæmi. Eins og þið vitið mörg þá er ég búin að vera með krónískt kvef og bólgur í nefinu í allan vetur og alltof oft veik þannig að ég fór til læknis til þess að reyna að finna eitthvað út úr þessu því þetta hefur jú mikil áhrif á sönginn! Og þá kom þetta í ljós! Aðeins 8 árum eftir að kötturinn kom inn á heimilið…isss…það er ekki neitt! Sennilega er stór hluti veikinda minna síðustu árin bara ofnæmi sem hefði verið hægt að komast hjá :S Ótrúlega skrítið að þurfa bara allt í einu að skipta um lífsstíl…nú má ég ekki fara inn í hús þar sem eru hundar eða kettir og náttúrulega alveg bannað að klappa hundum og köttum. Hvernig á maður að venja sig á þetta allt í einu? :O
Nóg um það…..ætla að fara að koma mér í háttinn. Ég kem í bæinn næsta sunnudag og verð í heila viku..jibbí jei…endilega verið í bandi
Góða nótt
Kristrún þjóðhátíðarlausa!
Við hrópuðum á þig í beinni útsendingu:) heyrðiru það? hehe.. Njóttu frísins og við sjáumst í bænum:)
By: Fanney Sigmarsdóttir on ágúst 5, 2008
at 2:24 pm
staffadjömm eru skemmtileg…. ég er alltaf að segja þér það!
By: Anna Guðrún on ágúst 5, 2008
at 4:53 pm
Heyrðu já ég á Íslandi, verð til 19. sept.
Já verðum að hittast, þegar við erum bæði í bænum…
Hef ekki séð þig… mjööööggg leengi
Suss-um-svei…
By: Hjalti on ágúst 6, 2008
at 3:13 pm
http://www.deilir.is/?p=35 smá brot af því sem að þú misstir af
By: Árni Sigurður Pétursson on ágúst 10, 2008
at 9:04 pm
ertu dáin út í bláinn?
By: Anna Guðrún on september 12, 2008
at 8:29 am
Já eiginlega…er samt alltaf að hugsa um það að blogga, kem því bara ekki í verk! :S
Fylgist allavegana með
En hver veit hvaða kraftaverk gerast um helgina
By: kristrun on september 12, 2008
at 10:11 am
Þú kemur senn í heimsókn??
By: Bryndís on september 12, 2008
at 11:36 am
ójá Bryndís…verðurðu heima á morgun sæta?
By: Kristrún on september 12, 2008
at 9:25 pm
Núna er ekki á morgun – ekki hinn heldur hinn og já ég er heima !
By: Bryndís on september 15, 2008
at 11:03 am
sko ég er bara alveg viss um að þú ert dáin út í bláinn…. nema þú sért dáin út í eitthvað annað? kannksi útí skóla? eða bíl? …þá þarf ég að koma að sækja þig og lífga þig við…
By: Anna Guðrún on september 19, 2008
at 10:15 am
sko. núna eru 10 sunnudagar síðan þú komst í bæinn og varst í viku! ÞAÐ BARA GETUR EKKI VERIÐ AÐ ÞAÐ HAFI EKKERT FRÉTTHÆFT GERST Á ÞESSUM TÍMA!!! Ég veit allavega betur!
blogg jú vúmann
By: Anna Guðrún on október 14, 2008
at 11:24 pm
skoo get ekki sagt mikið sjálf.. en Kristrún bloggaðu:D
By: Fanney Sigmarsdottir on október 19, 2008
at 7:47 pm
ókei ókei ókei…þið hafið rétt fyrir ykkur!!
Nú er nýja markmið mitt að blogga um helgina! Samþykkt?
Þið verðið að aðstoða mig við að standa við það!
By: Kristrún on október 22, 2008
at 11:18 pm
það er kominn fimmtudagur og ekkert blogg??
By: Anna Guðrún on október 23, 2008
at 9:33 am
ert búin að hafa alveg ca 10 klst til að blogga síðan þú settir inn markmiðið!
var að taka eftir því núna… en það má ekki láta næstu helgi líða án þess að blogga!
By: Anna Guðrún on október 23, 2008
at 9:34 am
Heyrðu! Næsta helgi var nú bara rétt að byrja! Það kemur örugglega blogg í kvöld…;) (vonandi!)
By: Kristrún on október 24, 2008
at 2:00 pm
og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið og svo byrjaði að rigna…
og hvaaaaar er bloggið? Næsta helgi er BÚIN!
By: Anna Guðrún on október 27, 2008
at 7:39 pm
þetta er skammarlegt!!!
By: Kristrún on október 28, 2008
at 12:14 am
Jesús!!!! Kristrún þú ert ekkert smá dugleg ! Að kommenta á þitt eigið blogg 5 sinnum ! Hversu mikið erfiðara er að búa til færslu og skella henni á bloggið svo við getum byrjað að kommenta á hvítum grunni á ný?
By: Bryndís on október 29, 2008
at 1:47 pm