Posted by: kristrun | júlí 19, 2008

Vinna, vinna, vinna og…..

…..vinna!! Já elskurnar mínar…ég biðst innilega afsökunar á þessu bloggleysi mínu! Ég er ekki hætt, bara á eitthverju lægðar tímabili í bloggheiminum núna! 

Nú er liðinn alltof langur tími síðan ég bloggaði síðast. Veit ekki einu sinni hverju ég á að segja frá! Held ég sleppi því sem löngu er liðið og segi ykkur frá hápunktum síðustu daga :) Hitt er ég hvort eð er búin að babbla frá mér ef þið (eða ég) hafið haft tíma til þess að hafa samband öðruvísi en “blogglega” ;)  

Úff…veit samt ekki á hverju ég á að byrja! Hvað segið þið um smá punktablogg bara? ;)

  • Ég er búin að vinna í 5-6 vikur á Hellishólum og líkar mjög vel :) Nóg að gera þar! Bý eiginlega bara í vinnunni…en til þess eru nú sumrin, maður er nú einu sinni bláfátækur námsmaður ;)  
  • Nú er ég í fyrsta og sennilega eina helgarfríinu mínu í sumar. Helginni átti að eyða með pabba og fjölskyldu (plús systursonur) í útilegu en þá tók systursonur minn upp á því að verða veikur og litli bróðir upp á því að leggjast inn á spítala! Þetta var nú meiri óheppnin…aumingja strákarnir mínir! Við pabbi og litla systir förum nú samt vonandi eitthvað á morgun…ég verð að komast í eina útilegu í sumar!! 
  • Ég fékk pláss á söngnámskeiði á Tónlistarhátíð unga fólksins sem verður í ágúst…námskeiðið mun standa yfir í eina viku með einkatímum, hóptímum, masterclössum, tónleikum og öllum pakkanum. Það verður örugglega krefjandi og skemmtilegt :) Hlakka til!
  • Í vikunni veittist mér svo sá heiður að hljóta námsstyrk úr Minningarsjóði Ólafs Túbals og Láru Eyjólfsdóttur! ;D
  • Og síðast en ekki síst þá eignaðist hún Bryndís okkar og Dagurinn hennar náttúrulega litla og gullfallega prinsessu í byrjun mánaðarins! Enn og aftur sendi ég litlu fjölskyldunni þúsund kossa og knús ;*
Þetta voru hápunktar mánaðarins! Man ekki eftir neinu öðru í augnablikinu…það kemur þá bara næst ;) Annars geri ég ekkert annað en að vinna þetta sumarið!
En eins og þið sjáið þá lifi ég ennþá í ævintýra heimi :D
Kommenta svo! Þó ég sé ekki búin að vera dugleg að blogga…þarf að sjá hvort það kíki nokkur hérna inn eftir allt þetta bloggleysi!! 
Yfir og út!
Kristrún Hvolsvallarmær ;)  

Responses

  1. Ég les bloggið þitt!!!!!

  2. híhí allavegana ef ég minni þig á það ;oD

  3. jáhhh:) HAHA.. segjum engum hvernig það fór fram:P

  4. Tjahh þetta er nú á bloggrúntinum mínum… þannig að ég hef kíkt hérna inn svona 12 milljón sinnum án þess að sjá neitt nýtt :)

  5. Loksins. Fínt að heyra aðeins af þér, annars var ég búin að frétta að þú værir á Hellishólum í sumar. Þú mátt nú alveg skjóta email á mig, þú ert með addressurnar.
    Ástarkveðjur og á Hvolsvöll líka !!!

  6. nei góðan daginn og velkomin til lífsins!


Leave a response

Your response:

Flokkar