Posted by: kristrun | febrúar 24, 2008

This is my life!

Blogg tvo daga í röð…getur það verið? :D  

Önnur góð helgi búin…og ég er strax byrjuð að bíða eftir þeirri næstu!! Á föstudagskvöldið komu mamma og Unnar í borgina og mér var boðið í mat í Blönduhlíðinni :) Eftir matinn “gónti” ég á sjónvarpið í hægindastólnum hans Gunnars frænda og át machintos :P

Óperudeildin og tónleikarnir á laugardaginn gengu mjög vel :) Ég var bara nokkuð sátt! Eftir tónleikana dreif ég mig svo bara heim í sveitina með múttu. Hákon Kári bestasti kom svo í pössun til ömmu sinnar þar sem að foreldrar hans fóru á ball (nánar tiltekið þorrablót) ;) Við horfðum saman á eurovision þar sem lagið mitt bar sigur úr bítum (ý eða í?!)…ég er bara mjööööög sátt við framlag okkar þetta árið :)  

Í dag gat ég loksins sofið út! mmmmmm :P Svo var það konudagskaffi hjá mömmu, og eftir það…konudagskaffi hjá pabba (úff aumingja bumban mín) !!! ég er allavegana ekki illa haldin eftir daginn..það get ég sagt ykkur ;) Við kíktum síðan upp á elliheimili til ömmu og afa…alltaf jafn gott að sjá aðeins framan í þau :)

Já..meira gerði ég ekki því farið mitt fór í bæinn kl 17. Svona er að vera svo fátækur að geta ekki verið á eigin bíl ;) Stutt heimsókn í sveitina en það er alltaf jafn gott að anda að sér “sveita” loftinu og njóta kyrðarinnar sem þar ríkir :)  Sunnudagskvöldin eru samt alltaf jafn einmannaleg…aaaalein í Ferjuvoginum og nýkomin úr sveitinni! En ég er þó búin að nota kvöldið vel…aðeins byrjuð að “planileggja” Berlínar ferðina! Ekki seinna vænna :D Það eru víst bara 11 dagar þangað til ég fer!

Hmmm..veit ekki hvað ég á að segja meira! Brjáluð vika framundan ,vegna óperudeildartónleika á föstudaginn, þannig að ég þarf að hlaða batteríin ;)  

Sjáumst!

Kristrún  


Responses

  1. Vá og nú er letrið hjúts?! :O
    O well…þetta er þó ekki í belg og biðu!!
    Kann ekki meir:(

  2. Vil byrja á því að þakka fyrir frábært fimmtudagskvöld!

    Gott að þú dreifst þig á Hvolsvöll, það hleður aðeins batterýin þín:) og ekki spillir fyrir þegar maður kemur út kökaður til baka:D haha:)
    Voandi sjáumst við í vikunni..

    E.S Er ekki allveg viss hvernig maður á að skrifa “bítum” :S

  3. Þokkalega er ég sátt við að þessi technó schooter drulla vann ekki !!!!! :)

  4. aaaaaalveg að koma næsta helgi!


Leave a response

Your response:

Flokkar