Ég held að það sé kominn tími á annað blogg. Ég er alltaf að bíða eftir þessu sama “inspiration” og ég fékk þegar ég þurfti skyndilega að blogga síðustu færslu! En hún kom ekki….þá verð ég bara að gjöra svo vel og draga orðin upp úr mér.Saumaklúbbs rúnturinn er loksins hafinn
Nú er bara að halda þessu ótrauðar áfram stelpur! Ég vil þakka gestgjafanum Bryndísi fyrir frábært kvöld…og auðvitað ykkur hinum líka
Við lengdum allavegana lífið um nokkra klukkutíma…það er bókað mál
Nú er smá tónleikaruna að byrja. Í dag er dagur tónlistarskólanna og verður dagskrá niðrí skóla í allan dag. Opin óperudeild og tónleikar þar sem “allir” nemendur skólans taka þátt
Tónleikar óperudeildarinnar eru svo á föstudaginn næsta og svo á víst að halda aðra óperudeildar tónleika úti á landi, viku seinna, þegar ég verð úti í Berlín!Já það fer alveg að líða að Berlínar ferðinni minni. Ég fer 6.mars….bara 12 dagar þangað til!! Shitt…ég þarf greinilega að fara að skipuleggja mig!Næstu helgi eru svo æfingarbúðir kórsins í Munaðarnesi ásamt árshátíð og öllu. Veit ekki alveg hvernig það fer hjá mér reyndar vegna þess að svo á ég að syngja á tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudeginum (2.mars), daginn eftir fyrirhugaða árshátíð!! :S Já…annars hef ég voðalega lítið að segja. Aldrei að vita nema ég hafi eitthvað meira að segja í kvöld! Kannski fæ ég eitthverja “vitjun” yfir undankeppni eurovision í kvöld
Já talandi um það….það eru allir alveg rosalega velkomnir að kíkja í heimsókn til mín í kvöld og horfa með mér á eurovision…mig vantar félagsskap!Jæja ég er farin út í skóla!Wish me luck
Kristrún
Ævintýrin halda áfram….
febrúar 23, 2008 eftir kristrun
æi hjálp!! af hverju kemur þtta alltaf svona samanþjappað
Ég er búin að reyna að breyta því!!!! búhú!
Hverjir í andsk… eru þetta hér að ofan?!?!?!
Takk annars fyrir tónleikana, þeir voru mjög fínir
Arg ég veit það ekki!!! Það er víst einhvers konar leikur á meðal ítala þar sem þeir eiga að kommenta hjá eitthverjum íslendingum!!!! Og koma okkur fyrir í bloggunum sínum held ég…allavegana er nafnið mitt í blogginu hjá öllum þessum fjöndum! Skil þetta ekki alveg…en ég er búin að heyra það! Er að verða geðveik á þeim! ég þarf alltaf að byrja á því að eyða milljón kommentum út!
en já…takk fyrir:) það var gaman að fá þig!
Takk sömuleiðis fyrir kvöldið !! Hvað segiði um 1 sinni eða tvisvar í mánuði ? Mikil lifandis skelfing var þetta gaman