Posted by: kristrun | febrúar 6, 2008

Nýtt fólk – ný veröld!

Eins og þið vitið þá er ég búin að vera að skipta um vinnu alloft upp á síðkastið…eða það finnst mér allavegana! Þar af leiðandi er ég alltaf að kynnast nýju fólki. Hver kannast ekki við þessar týpísku spurningar þegar maður er kynntur fyrir nýju andliti:

  • Býrðu hérna í hverfinu?
  • Hvaðan kemur þú?
  • Áttu mann?
  • En börn?
  • (og ef maður er í aukavinnu) Hvað gerirðu annað en að vinna hérna?
Ég er búin að svara þessum spurningum ansi oft síðustu daga þar sem að ég er nýbyrjuð á ansi fjölmennum vinnustað! Á endanum fær maður nú pínu leið á því að vera stanslaust að svara sömu spurningunum….EN!! 
 Ég sat á kaffistofunni í gær þegar inn kemur enn eitt nýja andlitið. Hún fer að spurja mig spjörunum út úr: “ert þá í skóla líka?”  ”Já” svara ég, “söngskóla Sigurðar Demetz”. Hún spyr mig nánar út í námið, hversu langt ég sé komin, hvað ég ætli að gera næst og svona…og svo kemur spurningin sem opnaði augu mín! “Eru fleiri úr fjölskyldunni þinni búnir að ganga þess braut?” …………
 
………………Ég lifi í ævintýri!
 
Kristrún :-)  

Responses

  1. nauhhh ekki: “ætlaru þá að vera söngkona?” en það vantar allveg í þennan spurninga lista.. “hey þekkiru þá þennan?”
    Ený hú, vona að maturinn hafi farið vel;) Hlakka til að borða með þér á Mcdonalds á morgun með Ak – fjölskyldunni:)

  2. hehe reyndar…var að spá í að setja það þarna en svo hugsaði ég með mér að kannski myndi sveitapakkið bara skilja þann brandara ;) En spurningin “ætlarðu að vera söngkona?” kemur svo sannarlega oft upp!!

    Hlakka líka ofsalega til! litla fjölskyldan reunited!! shitt hvað það er langt síðan!!!!!!!!!!!!!!

  3. ég er aldrei spurð hvort að ég eigi mann eða börn.. kannski vegna þess að fólk heldur að ég sé 17 ára..

  4. Haha !!
    Já þetta var skemmtileg spurning, manneskjan sem spurði hlýtur sjálf að hafa verið áhugaverð.

    Leiðinlegasta spurningin sem ég fæ er: “Oh váá geturðu þetta allt” þegar ég er búin að telja upp rununa í þreytulegum tón yfir allt sem ég er að gera í lífinu… hljómar náttúrulega 100 sinnum erfiðara og leiðinlegra þegar maður nennir ekki að tala um það !

  5. Tharf vist ad kvitta her lika. Nae ekki islenska stafrofinu her i bili. Tharf ad athuga malid thar sem thad var ekkert vandamal a Inst. Mess.

  6. Mér lýst annars vel á quotið undir fyrirsögninni á blogginu, lýsir sannri ævintýramanneskju :)

  7. Næsta fimmtudagskvöld – hvað er á dagskrá þá ? Ég er til í hitting ! :)

  8. Já ég ætti að geta það! Svo lengi sem það sé ekki aukaæfing vegna tónleikatarnarinnar ;) Eigum við ekki bara að stefna á það? Ákveða bara stað og stund ;)

  9. Jú endilega ! Hjá mér eða þér – eða einhverjum öðrum sem vill vera með ? *ER EINHVER ANNAR SEM VILL VERA MEÐ?*

    ég er búin að vinna kl 18:30, hvenær sem er eftir það ;)

  10. Er ekki kominn tími á heimsókn í Hafnafjörðinn aftur? ;o) annars er mér alveg saman…getum líka örugglega alveg verið hérna :)
    Fanney tilkynnti mér áhuga um þáttöku áðan…hvar ertu Fanney mín? ;)

    Ég ætti að vera búin um svipað leiti í skólanum, milli 18:30 og 19…svo lengi sem það er ekki aukaæfing! Hvernig væri að stefna á 20?

  11. Já, ég er til í það !! Næ þá meira að segja að skella mér í prufutíma í meðgöngusundi á undan ;)

    Anna Guðrún sagði mér líka að hún væri til í að koma ! Hér verður þá opið hús kl 20 ! Dagsi minn verður bara inni í vinnuherbergi á meðan að teikna snjóþotur.

    Eigum við að hafa eitthvað snarl hjá okkur til að narta í ? :)

  12. hehe honum er nú líka alveg velkomið að vera með okkur…við erum ekkert miiiikið hræddar við hann! ;)

    Snarl…já það væri ekkert vitlaust:) svo þetta verði nú alvöru saumaklúbbur! ;) hmmm…allir að koma með eitthvað smá eða eigum við kannski sameinast eitthvað með það? Baaara svo lengi sem það sé eitthvað ódýrt og gott fyrir fátæka námsmenn ;)


Leave a response

Your response:

Flokkar