Posted by: kristrun | febrúar 1, 2008

Fyrsta bloggið!

Jæja…þá er ég búin að finna mér nýja bloggsíðu! Ég er eitthvað að reyna að vinna í henni en eins og flestir vita þá er ég ekki beint sú klárasta á tölvur :S En þetta kemur eins og annað! Þarf bara að fá Önnu Guðrúnu eða Fanney í heimsókn ;)  Annars er voðalega lítið að frétta af mér held ég! Ég er búin að vera veik síðustu tvo daga…er um það bil að mygla úr leiðindum! Verð að vera orðin hress á morgun því ég á að fara í söngtíma, óperudeildaræfingu og árshátíð í skólanum :D Úff hvað ég verð svekkt ef ég missi af þessu öllu!! Nei nei…ég verð orðin hress! og hana nú! Ég ætla að fara að reyna að læra nokkra texta utan að!Blogga meira þegar ég hef eitthvað að segja….jahh…eða þegar ég man hvernig á að blogga!Segið þið mér nú eitthvað skemmtilegt í kommentum ;) Kristrún  


Responses

  1. Ohh! þetta kom allt í einni belg og biðu! Átti ekkert að vera þannig :( En auðvitað kann ég ekki að laga það!! O well…reyni það seinna…er búin að fá nóg af tölvum núna!!

    Kristrún

  2. hæ hæ:) Gaman að sjá vitnað í mig:D

  3. (krafist) haha snilld!

    En allavega welcome back daaarling!

  4. og hey… taktu þetta bíður samþykkis dæmi af ;)

  5. Já velkomin til baka !! Við verðum að vera duglegar að blogga stelpur, það er svo gaman að geta fylgst með :) þó að maður sé of upptekinn til að hittast :(

  6. Ohh ég kann það ekki!!

  7. já það er alveg agalegt hvað við hittumst sjaldan stelpur!! Við verðum bara að fara að plana eitthvern saumaklúbbshring svo við hittumst örugglega allavegana einu sinni í mánuði :) Svo bara að vera duglegar að blogga svo við missum örugglega ekki af neinu!! ;)

  8. Hey hvað er ég nú búin að gera?! Er ekki hægt að kommenta lengur eða?????? :p

  9. Ég er að kommenta núna ! Kemur það ??

  10. Mér lýst vel á saumaklúbb !! Verð að fara að byrja að sauma barnafötin ;) hehehe…. neeei það er örugglega ekki að fara að gerast á saumaklúbbskvöldunum, ætli þau þróist ekki út í slúður.

    Eruði með tillögur að dögum? Fyrsta fimmtudagskvöldið í mánuði eða e-ð ? ;)

  11. í gamla daga gátu nú konurnar saumað og slúðrað…við hljótum að geta það líka ;o) hehe þér er velkomið að reyna það:D

    Hmmmm….já…fimmtudags- eða þriðjudagskvöld henta mér ágætlega :) reyndar kemst ég ekki næsta fimmtudag vegna heimsóknar að norðan en ætti vanalega að komast, svo lengi sem það eru ekki aukaæfingar!! :P

    Hvað segið þið hinar? Er þetta ekki tilvalið bara? :D komum þessu bara á fast!! ;)

    p.s. jú kommentin þín sáust Bryndís, ég náði greinilega að laga það aaaaalveg sjálf :D júhú!

  12. Kristrún er lítill tæknisnillingur inn í sér en hún tekur það ekki alltaf fram, hún fílar sig betur í svörtukonu hlutverkinu (smá einkahúmor)

    Hérna eina manneskjan sem ég sé sauma/prjóna er bryndís. Eruð þið hinar mjög flinkar á prjónana?

  13. Ég er afskaplega flink í að prjóna… hef reyndar ekki snert prjóna í 15 ár en þetta er alveg eins og að hjóla, gleymist ekki.. er það nokkuð? Ég var líka mjög flink í krosssaumi hérna á árum áður.. langt síðan maður hefur stungið almennilega út! Náði samt aldrei tökum á að hekla.. það treysti sér enginn til að kenna mér það örvhent.. gaman að því..

  14. haha þið eruð snillingar :D Mig er bara farið að langa að finna mér eitthverja handavinnu fyrir þessa blessaða saumaklúbba ;)

    En hvað með “dagsetningarnar” illarnir ykkar?! :)

  15. Kann einhver af ykkur að hekla ?? Ég verð að læra að hekla, langar að hekla eitt lítið teppi svona til dundurs í staðinn fyrir að hanga í tölvunni ;)

  16. Ég kunni það einu sinni, heklaði slatta með ömmu minni þegar ég var yngri! en þvi miður þá man ég ekki hvernig á að gera það :(


Leave a response

Your response:

Flokkar